Hvernig virkar leitin?
Nýbyggingar
Langalína 34:
Langalína 34 í Sjálandshverfinu í Garðabæ er 10 íbúða lúxus fjölbýlishús þar sem allar íbúðir eru með ægifögru óskertu útsýni. Húsið stendur vestast á tanganum og er útsýnið óskert frá suðvestri til norðurs. Mikið verður lagt í innri frágang íbúða, m.a. verða innréttingar sérsmíðaðar með graníti á borðum, halogen lýsing í loftum, hitalögn með hljóðdempun í gólfum og margt fleira. Að innan skilast íbúðirnar fullbúnar án gólfefna fyrir utan baðherbergis- og þvottahús gólf sem verður flísalagt.
> nánar
Nýhöfn 1-5:
Við Nýhöfn 1-5 í Sjálandshverfinu í Garðabæ er í byggingu 15 íbúða fjölbýlishús þar sem allar íbúðir eru með ægifögru sjávarútsýni. Húsið stendur fremst við væntanlega smábátahöfn og er útsýnið óskert frá norðri til austurs. Húsið er skipt upp í þrjú stigahús og eru lyftur í öllum stigahúsum. Allar íbúðirnar eru með tvennum svölum og fylgja bílskúrar öllum íbúðum. Að innan skilast íbúðirnar fullbúnar án gólfefna fyrir utan baðherbergis- og þvottahús gólf sem verður flísalagt.
> nánar
Vindakór 9-11:
Við Vindakór 9-11 í Kópavogi er í byggingu 22 íbúða fjölbýlishús þar sem allar íbúðir eru með sérinngangi af glerjuðum svalagangi. Íbúðirnar eru allar 4ra herbergja nema ein íbúð sem er 6 herbergja penthouse íbúð. Allar íbúðirnar eru með suður svölum eða sérafnotareit af lóð til suðurs. Að innan skilast íbúðirnar fullbúnar án gólfefna fyrir utan baðherbergis- og þvottahús gólf sem verður flísalagt.
> nánar
Norðurbakki 23-25:
Húsin eru staðsett fremst á Norðurbakkanum í Hafnarfirði, með óskert útsýni á sjóndeildarhringinn og hafflötinn til suðurs og vesturs, af efri hæðum húsanna er óskert útsýni yfir norðurbæ Hafnarfjarðar og að Álftanesi. Íbúðir í húsunum njóta því besta útsýnis af Norðurbakkanum og sólarlagið blasir við úr stofugluggunum. Íbúðirnar í húsinu eru því einstakar hvað útsýni varðar og náin tengsl við náttúruna.
Arkitekt hússins er Björn Ólafs, arkitekt í París.
> nánar
Víkurhvarf 2:
Komið er í einkasölu - einkaleigu fallegt og stílhreint atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum í Hvarfahverfinu í Kópavogi. Húsið er samtals um 3.641,1 fm að stærð.
Arkitekt er Kristinn Ragnarsson
> nánar
Stóragerði 42-44:
Í húsinu eru 14 íbúðir á 4 hæðum með einu stiga/lyftuhúsi og svalgangi. Efsta hæðin í húsinu er inndregin. Á fyrstu 3 hæðum eru 4 íbúðir en 2 á efstu hæð. Hverri íbúð fylgja 2 bílastæði, þar af eitt í bílakjallara. Í kjallara eru inntaksrými, geymslur, hjóla- og vagnageymsla og bílageymsla fyrir 14 bíla. Sorpgeymsla er á afmörkuðu svæði við stigahús. Lyfta er í stigahúsi. Allar íbúðir mæta kröfum fyrir hreyfi hamlaða. Með íbúðum á jarðhæð fylgir sérafnotaréttur af garði, afmörkuðum samkvæmt teikningum arkitekta.
> nánar
Nýbyggingar
Borgir fasteignasala
kynnir
nýjar fasteignir

Höfum til sölu mikið af nýbyggingum.
Borgir eru í samstarfi með helstu
byggingarfyrirtækjum landsins.
Eignirnar eru meðal annars í :
Nánari upplýsingar um ofangreindar nýbyggingar fást hjá sölumönnum okkar í síma 588-2030
Tilkynning
Við höfum flutt á nýjan stað!
Fasteignasalan Borgir hafa flutt starfsemi sína að Furugerði 3 - 108 Reykjavík. Við erum beint á móti Grensás, endurhæfingardeild LSH.
>> sjá nánar



Nýhöfn 1-5
Vindakór 9-11
Norðurbakki 23-25