Borgir fasteignasala

Eign vikunnar:

Hvernig virkar leitin?

Leitarvélin virkar þannig að þú slærð þau skilyrði sem þú sækist eftir. T.d. ef þú sækist eftir Salarhverfinu í Kópavogi, 3 herbergja íbúð þá velurðu í staðsetning "201 Kópavogur" og í fjöldi herbergja "3 herbergja" þá koma þær eignir sem við eigum til sem passar við þín skilyrði.

>> Norðurbakki:

Glæsileg fjölbýlishús með miklu útsýni.
Húsin standa fremst á Norðurbakka.

Fjallalind

  • Staðsetning: 201 Kópavogur
  • Herbergi: 4
  • Stærð: 145 m2
  • Svefnherbergi: 3
  • Búsetuform: Parhús
  • Baðherbergi: 1
  • Uppsett verð: 45.000.000
  • Stofur: 1
  • Byggingarár: 1996
  • Þvottahús: Sér
  • Inngangur: Sér
  • Brunabótamat: 34.950.000

Lýsing

Borgir sími 588-2030 kynna: GLÆSILEGT 146 FM. PARHÚS Á EINNI HÆÐ ÁSAMT INNBYGGÐUM BÍLSKÚR - EIGN Í SÉRFLOKKI. HÚSIÐ ER SEM NÝTT AÐ INNAN SEM UTAN - GÓÐ STAÐSETNING.
Húsið er um 122 fm auk bílskúrs 24 fm og viðbótarrýmis (millilofts) um 18 fm. Garður með mikilli verönd og fallegum gróðri og garðhúsi.
Húsið skiptist þannig: Forstofa með skápum, rúmgott hol / miðrými, stofa og borðstofa með útgengi út á verönd og í garðinn. Eldhús með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél - góður borðkrókur. Þvottahús er með miklum innréttingum. Glæsilegt flísalagt baðherbergi með stórri innréttingu og steyptum sturtuklefa. Hjónaherbergi með stórum skápum og hefur verið sameinað einu barnaherbergi og er því mjög rúmgott (auðvelt að breyta aftur). Útgengi er frá hjónaherbergi út á verönd. Þá er gott barnaherbergi.
Gólfefni íbúðarinnar eru vandaðar flísar og parket, allar innréttingar eru úr kirsuberjavið, loft eru að mestu upptekin og með halogenlýsingu.
Bílskúr er innbyggður og með flísum á gólfi, allar lagnir, innangengt úr holi. Bílaplan er með snjóbræðslu.
Viðbótarrými er á millilofti í bílskúr (geymsla) og yfir hluta íbúðarrýmis (barnarými).
Garður er með skjólgirðingu og um 150 fm verönd og þar lagnir og steyptar undirstöður fyrir pott.

Til baka