Starfsemi vetrarins 2010-2011
9. janúar 2010: Fundur í Þjóðmenningarhúsinu kl 14.00. Fyrirlesari Eiríkur Steingrímsson prófessor, Lifefna- og sameindalíffræðistofu, Læknadeild Háskóla Íslands, og fjallar um efnið: "Frá litfrumum til sortuæxla: Bygging og hlutverk stjórnpróteinsins MITF". Léttar veitingar í boði Vísindafélagins að loknum fundi.
Starfsemi vetrarins 2008-2009
25. nóvember 2009: Fundur í sal Norræna hússins kl 20.00. Fyrirlesari Sigríður Sigurjónsdóttir dósent í íslenskri málfræði við Hugvísindasvið Háskóla Íslands, og fjallar um efnið: "Það var sagt mér að það væri partí hérna": ný setningagerð í íslensku. Kaffiveitingar í boði Vísindafélagsins að loknum fundi.
28. október 2009: Fundur í sal Norræna hússins kl 20.00. Fyrirlesari Ari Trausti Guðmundsson jarðvísindamaður og rithöfundur, og talar um Vísindamiðlun: vísindi fyrir alla.
29. apríl 2009. Framhaldsaðalfundur í Háskólatorgi, stofu HT-103 kl 19:00. Lagabreytingar til umfjöllunar og atkvæðagreiðslu. Að loknum aðalfundarstörfum kl. 20:00 heldur Jónas Haralz hagfræðingur fyrirlestur um "Leit að staðfestu. Ágrip af sögu íslenskra peningamála". Að erindi loknu og umræðum verður boðið upp á kaffiveitingar. Ath. breyttan fundarstað!
25. mars 2009. Aðalfundur í Norræna húsinu kl. 19.15. Að loknum aðalfundarstörfum heldur Gunnþóra Ólafsdóttir fyrirlestur um endurnærandi áhrif ferðalaga um náttúru Íslands og hefst hann kl. 20.00.
25. febrúar 2009. Fundur í sal Norræna hússins kl 20:00. Fyrirlesari Þórarinn Guðjónsson dósent við Læknadeild Háskóla Íslands. Efni: Stofnfrumur og krabbamein: Frá hagnýtri þekkingu til nýrra meðferðarmöguleika.
28. janúar 2009: Fundur í sal Norræna hússins kl 20:00. Fyrirlesari: Freysteinn Sigmundsson, vísindamaður á Norræna eldfjallasetrinu, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Efni: Jarðskorpuhreyfingar og eldfjallakerfi Íslands.
Starfsemi vetrarins 2007-2008
29. september 2007: Ráðstefna Vísindafélagsins og Háskóla Íslands haldin í hátíðarsal Háskóla Íslands. Yfirskrift Vísindamaðurinn Jónas Hallgrímsson. Háskólarektor, Kristín Ingólfsdóttir, setur ráðstefnuna.
Fyrirlesarar:
Sveinbjörn Rafnsson: Jónas Hallgrímsson og fræði fornra minja.
Sigurður Steinþórsson: Jónas og jarðfræðin 1830-1845.
Trausti Jónsson og Hilmar Garðarsson: Jónas Hallgrímsson og veðurathuganir á Íslandi um og upp úr 1840.
Guðrún Kvaran: Vatnareyðar sporðablik, málblíðar mæður og spegilskyggnd hrafntinnuþök: Um orðasmíð Jónasar Hallgrímssonar.
Sveinn Yngvi Egilsson: Jónas Hallgrímsson - náttúruskáld?
Fundir vetrarins:
31. október 2007: Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur, Stórgos á bronsöld í Miðjarðarhafi og áhrif þess.
28. nóvember 2007: Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur, Vita activa og vita contemplativa. Hugleiðingar um samband heimspeki og stjórnmála út frá kenningum Hönnuh Arendt.
30. janúar 2008: Arnfríður Guðmundsdóttir guðfræðingur, Lúther og konurnar. Um áhrif siðbótar Marteins Lúthers á líf kvenna.
15. febrúar 2008: Aðild að málþingi ásamt Íslenskri málnefnd með yfirskriftinni: Íslenska í vísindum og fræðum. Íslensk málnefnd stendur nú fyrir röð málþinga í samvinnu við ýmsa aðila og eru málþingin liður í undirbúningi að samningu draga að íslenskri málstefnu. Haraldur Bernharðsson, stjórnarmaður í Íslenskri málnefnd setti málþingið en fyrirlesarar voru:
Ástráður Eysteinsson: Útstöð eða miðstöð.
Sigurður Júlíus Grétarsson: Málstefna og málnotkun í félagsvísindum: Nokkrar ábendingar.
Þorsteinn Vilhjálmsson: Þekking, hugsun, tunga.
Örnólfur Thorlacius: Náttúrufræði á íslensku.
27. febrúar 2008: Þórunn Rafnar erfðafræðingur: Rannsóknir á erfðaþáttum algengra sjúkdóma: krabbamein í blöðruhálskirtli.
26. mars 2008: Aðalfundur Vísindafélagsins. Að loknum aðalfundarstörfum mun Bjarni E. Guðleifsson jarðræktarfræðingur halda erindi um kal í túnum.
24. september 2008: Fundur í Hátíðarsal HÍ kl 20:00. Hjalti Hugason prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands : Sigurbjörn Einarsson biskup - ævi, störf, guðfræði.
29. október 2008: Sveinn Ólafsson eðlisfræðingur: Eðlisfræði og agnahraðlar.
Fundurinn verður í sal Norræna hússins og hefst kl. 17. Athugið breyttan fundartíma!
28. nóvember 2008: Málþing í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur, kl 14-16. Um "Hlutverk vísinda í framtíð Íslands". Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, flytur inngangsorð. Aðrir ræðumenn: Guðrún Nordal prófessor, Þórólfur Þórlindsson prófessor, Einar Steingrímsson prófessor, og Magnús Karl Magnússon læknir. Fundarstjóri verður Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Pallborðsumræður með þátttöku fyrirlesara og menntamálaráðherra. Kaffiveitingar í boði Vísindafélagsins.
6. desember 2008: Afmælisfundur Vísindafélags Íslendinga, vegna 90 ára afmælis þess, í Hátíðarsal Háskóla Íslands, kl 14-16. Fyrirlesarar: Unnur Anna Valdimarsdóttir dósent, Karl Ægir Karlsson lektor, Kristján Leósson vísindamaður í eðlisfræði, Vilhjálmur Árnason prófessor. Fundarstjóri verður Þórarinn Guðjónsson varaforseti Vísindafélags Íslendinga. Léttar veitingar í boði Vísindafélagsins að fundi loknum.
