Æsir, ásynjur og Ásuverðlaun
Verðlaunasjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright, Ásusjóður, var stofnaður á hálfrar aldar afmæli Vísindafélagsins 1. desember 1968. Sjóðinn stofnaði Ása til minningar um eiginmann sinn, ættingja og aðra venslamenn. Sjóðurinn skyldi vera sjálfstæður verðlaunasjóður, og skyldu vextir af honum standa undir fjárveitingum og viðurkenningargjöfum. Í stofnskrá er gert ráð fyrir að verðlaunaveiting úr sjóðnum fari fram við opinbera athöfn, þar sem skýra skal frá ástæðum fyrir verðlaunaveitingunni. Formaður þriggja manna stjórnar sjóðsins hefur frá upphafi verið dr. Sturla Friðriksson, frændi Ásu.
Ása Guðmundsdóttir fæddist að Laugardælum í Flóa 12. apríl 1892. Ung gekk hún að eiga enskan lögmann, dr. Henry Newcomb Wright. Þau bjuggum um árabil í Englandi, þar sem þau sáu um rekstur á landi og húseignum, en í lok síðari heimsstyrjaldar settust þau að á Trinidad í Vestur-Indíum, sem þá var bresk nýlenda. Þar áttu þau og ráku plantekru á landsvæði, sem síðar var friðlýst vegna stórbrotinnar náttúru og sérstæðs fuglalífs. Var það fyrir tilstilli Ásu, að búgarði hennar var breytt í aðsetur náttúruskoðara og vísindamanna, en samtök þeirra festu að lokum kaup á eign hennar. Þegar Ása seldi búgarðinn, sá hún um að andvirði eignarinnar yrði meðal annars varið til stofnunar þessa sjóðs í tengslum við Vísindafélag Íslendinga, sem frá 1969 hefur árlega veitt viðurkenningu Íslendingi sem unnið hefur veigamikið vísindalegt afrek á Íslandi eða fyrir Ísland.
Þeir eru:
| Ártal | Viðtaki |
|---|---|
| 1969 | Sigurður Nordal |
| 1970 | Sigurður Þórarinsson |
| 1971 | Ingimar Óskarsson |
| 1972 | Baldur Líndal |
| 1973 | Þorbjörn Sigurgeirsson |
| 1974 | Jakob Benediktsson |
| 1975 | Jón Steffensen |
| 1976 | Páll A. Pálsson |
| 1977 | Steindór Steindórsson |
| 1978 | Haraldur Sigurðsson |
| 1979 | Sigurður Sigurðsson |
| 1980 | Lúðvík Kristjánsson |
| 1981 | Sigurður Thoroddsen |
| 1982 | Jónas Kristjánsson |
| 1983 | Sigmundur Guðbjarnason |
| 1984 | Ólafur Bjarnason |
| 1985 | Unnsteinn Stefánsson |
| 1986 | Gðmundur Pálmason |
| 1987 | Sigurbjörn Einarsson |
| 1988 | Jón Jónsson |
| 1989 | Hörður Ágústsson |
| 1990 | Halldór Halldórsson |
| 1991 | Sveinbjörn Björnsson |
| 1992 | Ólafur Halldórsson |
| 1993 | Margrét Guðnadóttir |
| 1994 | Þórður Tómasson |
| 1995 | Guðmundur E. Sigvaldason |
| 1996 | Oddur Benediktsson |
| 1997 | Jakob Jakobsson |
| 1998 | Ólafur Ólafsson |
| 1999 | Hermann Pálsson |
| 2000 | Haraldur Sigurðsson |
| 2001 | Þráinn Eggertsson |
| 2002 | Kristján Sæmundsson |
| 2003 | Elsa E. Guðjónsson |
| 2004 | Stefán Aðalsteinsson |
| 2005 | Helga Ögmundsdóttir & Jórunn Erla Eyfjörð |
| 2006 | Steinar Þór Guðlaugsson |
| 2007 | Gunnar Karlsson |
| 2008 | Einar Stefánsson |
| 2009 | Höskuldur Þráinsson |
